lirik lagu skalmold – upprisa
risin upp af jörðu, reikul eru spor,
röddin brostin, andinn sár og lamað er mitt þor.
gen ég upp að vörðu, gái yfir brún,
garður hruninn, bæjarrúst og sviðin öll mín tún.
óðinn!
heimdallur!
himnahallir!
baldur!
forseti!
æsir allir!
aumkið ykkur yfir mig, blásið mér í brjóst
baráttu- og hefndarmóð, núna er mér ljóst
að það er verk sem út af stendur, ég verð að sinna því,
valinn þekja fallnir, svartan himin kólguský.
stillið mínar hendur, styrkið þreyttan fót,
styðjið við mig, bræður, sækið axir, sverð og spjót.
nár við fætur liggur, nidd er sérhver taug,
núna söfnum líkunum og leggjum þau í haug.
hugurinn er styggur, hefndarþorstinn sár,
heiðin geymir friðþægingu upp við jökulsár.
upprisinn á ögurstund,
örlög skapa hetjulund.
loksins núna léttast spr,
lyftist brún og eflist þor.
birginn þannig býður þeim
bitvargi úr heljarheim.
heldur hann í veika von,
vígamaður óðinsson.
rís hann upp og sjá – ég er afli gæddur!
ríður burtu gná – þessi ógnarkraftur!
berserkur upp rís – ég er baldur fæddur!
bliknar heilladís – ég kem aldrei aftur!
ríðum móti hættum, ríðum yfir heiði.
ríðum móti vættum, leggjum bú í eyði.
upp er risinn baldur óðinsson!
hefnum fyrir vígin, hættur okkur lokka.
heiman fetum stíginn, seint mun klárinn borkka.
upp er risinn baldur óðinsson
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu diana krall – and i love her
- lirik lagu donny osmond – keep her in mind
- lirik lagu asleep at the wheel – bob wills is still the king
- lirik lagu the game – out of towner
- lirik lagu frank loesser – more i cannot wish you
- lirik lagu methods of mayhem – proposition fuck you (f/filthee immigrants)
- lirik lagu pete rock – rock steady pt. ii
- lirik lagu linkin park – plc.4 mie haed – amp live/zion of zion i
- lirik lagu merle haggard – if you’ve got time (to say goodbye)
- lirik lagu foo fighters – darling nikki (prince cover)