lirik lagu offbít – heimagerður veruleiki
hvort sem í samhengi eða samhengislaus
ég og allar pælingar um tilganginn raus
og allar röksemdir og plön standa á haus
því það er ekki bara ein skrúfa laus
bakvið myndirnar á veggjunum eru eintómar holur
eins og tárin undir sólgleraugunum eintómar vofur
hegðun eftir handriti en samt alltaf ofur
lítill efi um einhver muni sjá gegnum okkur
og því fór sem fór, kannski fullorðin en samt ekki stór x2
á milli línanna er allt sem ég vildi hafa sagt og ég vildi að ég hefði haft meiri vit og meiri kjark
hef ekki módel til að máta mig við
og skortir aga til að sjá mig frá hlið
suma daga finnst ég komast á skrið
en hleyp á veggi sem ég byggi inná við
og mála myndir uppá veggina sem meika ekkert sens
að skreyta blekkingar er vont en það venst
hringsóla milli biðskýla, þreyttur en tens
vona að einhver þessa bílstjóra gefi mér sjéns
ég þarf að fara, burt og heim
finnst ég rata, leiðin er greið
en svo er alltaf önnur leið
sem að freistar þeirra sem eru sein
og því fór sem fór, kannski fullorðin en samt ekki stór x2
á milli línanna er allt sem ég vildi hafa sagt og ég vildi að ég hefði haft meiri vit og meiri kjark x2
ég þarf að fara, burt og heim
finnst ég rata, leiðin er greið
en svo er alltaf önnur leið
sem að freistar þeirra sem eru sein
og því fór sem fór, kannski fullorðin en samt ekki stór x2
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu snova razbit – обреченный (obrezhenniy)
- lirik lagu 2aisha – хапаю
- lirik lagu clem27song – c’est du passé
- lirik lagu velanit – forgot
- lirik lagu massimo savić – da li znaš, da te volim
- lirik lagu supa squad – na minha
- lirik lagu mobrici – luci del colosseo
- lirik lagu otaku god – no game no life
- lirik lagu karpadot hafakot – תומו ילד הומו
- lirik lagu silverwind (usa) – a song in the night