lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu kælan mikla – ætli það sé óhollt að láta sig dreyma

Loading...

svífa svartir svanir
sínum vængjum á
yfir háar hæðir
og hæðast að mér
~þeir spurðu mig, mín kæra
hvurslags vængi ég bæri
á berum herðum mér
þeir sögðu mér að fljúga

vífa svartir svanir
sínum vængjum á
yfir háar hæðir
og hæðast að mér
~þeir spurðu mig, mín kæra
hvurslags vængi ég bæri
á berum herðum mér
herðum mér

þeir sögðu mér að fljúga
svo ég flaug og sá þá aldrei aftur
en ég heyrði þeirra hæðnis hlátur
bergmála í björgunum
sem voru það síðasta sem ég sá
síðasta sem ég sá

þú þarft ekki spítt eða kókaín, elskan mín
reyktu mig, sleiktu mig, mölvaðu og snortaðu
settu í skeið og bræddu mig og sprautaðu mér í þig og finndu hvað ég tek mikið pláss
finndu fyrir sprengingunni inní þér, ástin mín, hvernig þú stækkar og líkaminn þolir ekki meir
svo þú springur og jörðin er hringur, sem þú vefur þig utan um
og lekur milli steinanna, fyrir aftan bar 11
og þú faðmar alla jörðina og þú finnur loksins fyrir þessari hamingju
þetta er það sem ég kalla gleði

en ég ber þennan dóm, og ég lækka minn róm
og ég man fyrst þegar ég fæddist
ég er frumburður og einkabarn nýs hugmyndaheims
eins og kommúnismi er ég falleg hugsun en ég verð aldrei að raunveruleika

í almyrkvuðum h~llum
ég ríkjum ræð og drottna
ég sé mig sjálfa rotna og
í eigin svita og táraflóði sit ég bara og blotna
ég nærist á þeim lífverum
sem sína mér ekki lotningu
hver elskar ekki sína eigin drottningu?
hver elskar ekki sína eigin drottningu?
sína eigin drottningu

í dauða djúpum
dreka drunum
drýp ég dögg
í sárum mínum
og syndaflóði
flýt ég um
blóði borin
brýt ég bein mín
bráðum kemur sólin

ég veit að raunveruleikinn er þarna einhversstaðar
en ég kemst ekki nær og ég er búin að reyna
ætli það sé óhollt að láta sig dreyma?

í dauða djúpum
dreka drunum
drýp ég dögg
í sárum mínum
og syndaflóði
flýt ég um
blóði borin
brýt ég bein mín
bráðum kemur sólin
bráðum kemur sólin
sólin
bráðum kemur sólin
sólin


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...