lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu ísold & helga – klukkan tifar

Loading...

senn í sinni dofna ljós
fækkar dögum, fölnar rós
tíminn hleypur nú sem fyrr

allt sem liðið er og gert
mátulega mikilsvert
jörðin stendur aldrei kyrr

lífið er nú, lífið er hér
ljúft eða sárt, hvernig sem er
en það er aðeins eitt, kemur og fer

lífið er nú, lífið er hér
staldraðu við, hægðu á þér
það er aðeins eitt, þú veist það vel
klukkan tifar

þegar sígur sól í haf
þegar allt er staðið af
og þú finnur ekki ró

þá mundu það sem gleði gaf
það sem fegurst var
þegar heimur hló
það er feykinóg

lífið er nú, lífið er hér
ljúft eða sárt, hvernig sem er
en það er aðeins eitt, kemur og fer

lífið er nú, lífið er hér
staldraðu við, hægðu á þér
það er aðeins eitt, þú veist það vel
klukkan tifar


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...