lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu heiðrún anna – þjakaður af ást

Loading...

við sitjum hérna bæði
og horfumst í augu
minningarnar streyma
ég vil hugsa um þær góðu
allt of langur tími
frá því við sáumst síðast
kveiki á mínu stjörnuljósi
svo þetta verði bara gaman

óravíddir á milli okkar
enn mætumst þó stundarkorn
á sporbaug minninganna
en það er margt sem mér
liggur á hjarta

ég veit ég þarf að bíða
sannleikurinn sár
ég er ekki tilbúin
það verður engu breytt
þjakaður af ást
hjartaverkjum, tilfinningar
sem ólga eins og náttúruöflin
óviðráðanleg

mætumst tveir heimar
nú eins og þá
fjarlæg og nálæg í senn
sitjum hér við borð
óravíddir á milli okkar
enn mætumst þó stundarkorn
á sporbaug minninganna
en það er margt sem mér
liggur á hjarta

ég veit ég verð að bíða
sannleikurinn sár
ég er ekki tilbúin
það verður engu breytt
það streyma niður tár
því ég þarf að kveðja
og eftir situr þú í eigin fangelsi
og refsar þér hvern dag


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...