lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens – frosinn gríma

Loading...

skömmu fyrir sólsetur sé ég miðnættið sigla að
leita skjóls í minningum liðins tíma
varir mínar hreyfast, sérð þú það?
andlit mitt sem frosin gríma
úr tóminu heyri ég spámannsins orð:
dæmir þú aðra, er enginn tími til að elska?
ég spyr með augunum: verð ég dæmdur fyrir morð
á sjálfum mér taki ég enga sénsa?

ef ég þyrfti ekki að giska
ef ég þyrfti ekki að giska
myndi ég glaður játa
það sem ég gæti hafa gert
ef ekki væri þessi vissa
ekki væri þessi vissa
myndi ég glaður játa
það sem ég hef ekki gert

frá angurværum skuggum til verksmiðjufriðar
eru fuglarnir frjálsir? spyr ég sjálfan mig
því þó vindar blási er eins og þeim ekkert miði
með hlekki himins vafða um sjálfa sig
þegar húma tekur spyr ég hjarta í trúnaði
hver er tjáning ástarinnar? og það svarar: þögnin
vissirðu það ekki, að ástin er tjáning þagnarinnar?

ef ekki þyrfti að giska
ekki þyrfti að giska
myndi ég glaður játa
það sem ég gæti hafa gert
ef ekki væri þessi vissa
ekki væri þessi vissa
myndi ég glaður játa
það sem ég aldrei hef gert


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...