lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu baggalútur – kósíheit par exelans

Loading...

afsakaðu allan þennan reyk inni
ég var barað líta til með steikinni
hún er meir og mjúk ~ hún er eins og hugur manns

loksins ertu kominn hingað á minn fund;
finn svo gjörla ~ þetter töfrastund
úti vindur og fjúk ~ kósíheit par exelans

smakka sósuna ~ því mér finnst hún í það þynnsta
hún þarf korter enn ~ í það allra minnsta
og við setjumst að borðum ~ ha~ha
já við setjumst og borðum ~ ha~ha

réttu rauðkálið, grænu baunirnar
viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
hvernig smakkast svo? ~ þetter yndislegt
jahá, en mest er þó gaman ~ ha~ha
að við skulum vera saman ~ ha~ha

góða veislu má ei skorta eftirrétt
eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt
fáðér rúsínubrauð
~nær algerlega fitusnauð

allir þurfa jú að passa línurnar
viljum ekki enda eins og svín ~ er það?
fokkitt ~ skítt með það ~ fáum okkur ögn meiri rjóma
viltu sérrítár? eða kamparí í órans?
æ, manstu vikuna okkar í flórens?
er við drukk~m það saman ~ ha~ha
æ, hvað það var nú gaman ~ ha~ha

smökk~m sörurnar, mömmukökurnar
makkarónurnar ~ еplabökurnar
hvernig smakkast svo? þetter dásamlеgt!
jahá, en mest er þó gaman ~ ha~ha
að við skulum vera saman ~ ha~ha

meira laufabrauð? eða marensfrauð?
hvar er konfektið? er það upp urið?
hvernig smakkast svo? þetter æðislegt!
jahá, en mest er þó gaman ~ ha~ha
að við skulum vera saman ~ ha~ha

hvar er beilísið? hvar er sjampeinið?
bættu toffíí æriskoffíið!
hvernig smakkast svo? þetter unaðslegt
jahá, en mest er þó gaman ~ ha~hah
að við skulum vera saman ~ ha~hah


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...