lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu vetur – píningur

Loading...

éljúðnir opnaðist upp á gátt í norðri
heljarfrost yfirtók allt landið
stigveldi hörku frá haustmánuðum
til enda góu er hafið fraus við frón

sólsett í upphaf þorra
tók með sér allan yl
sultur á borðum í hverjum bæ
sviðin bein í öllum h~rnum nöguð í gegn

út í hríðina förinni var heitið
hungrið ýtti öllum áfram
botnfrosinn fjörður
bátar í heljargreipum
fæðan undir mörgum föðmum af ís

frosin tár særa kinn
fjöllin hverfa í fönn
hvítblinda tefur för
vonleysi stöðvar för

út fyrir fjörð, von um æti
minnkar með hverju skrefi
fingur og tær blásvartar
brátt dvína allir kraftar

við minni fjarðar standa
með brostin hjörtu
ís eins langt og augað eygir
köld eyðimörk í allar áttir
hungurverkir og þróttleysi
tíminn rennur út

för til baka með hendur tómar
einn af öðrum falla úr hor og vosbúð
frostið nístir inn að beini
hrímaugu stara upp í himin
og hverfa senn í fönn


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...