
lirik lagu various artists - ástarsæla
[textar fyrir “ástarsæla”]
[vísa 1]
leggð´ aftur augun þín skær
ástin mín dagur er fjær
svo vil ég vaka þér hjá
vernda þig, ef að ég má
er ég horf´ á þig hitnar mín sál
hverfur orð get´ ei túlkað mitt mál
og er sefurðu sætt mun ég vak´ yfir þér
sæll af ást ég er
[viðlag]
sefur þú nú, sætt og rótt
sveipuð í rökkri og yl
hvíldu hjá mér, allt er hljótt
himneskt er að vera til
[vísa 2]
sólin er sest, það er nótt
sefur þú nú sætt og rótt
fegurð þín færir mér yl
gott finnst mér að vera til
litlum kossi ég lauslega stel
lítinn þjófnað ég kossinn þann tel
og er sefur þú sætt mun ég vak´ yfir þér
sæll af ást ég er
[viðlag]
sefur þú nú, sætt og rótt
sveipuð í rökkri og yl
hvíldu hjá mér, allt er hljótt
himneskt er að vera til
[vísa 3]
aftur er augun þín skær
opnast, þá verð ég þér nær
vernda þig áfram ég vil
veita þér sælu og yl
öðrum kossi þá aftur ég stel
aðeins þér alla ást mína fel
og að síðustu ást mína segi ég þér
sæll af ást ég er
[viðlag]
sefur þú nú, sætt og rótt
sveipuð í rökkri og yl
hvíldu hjá mér, allt er hljótt
himneskt er að vera til
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu protasby music - оппозиция(opposition)
- lirik lagu mel street - don't lead me on
- lirik lagu mali (blaq) & hoodblaq - backflip
- lirik lagu víctor manuel - por el camino de mieres [versión tiempo de cerezas]
- lirik lagu naomi sharon - can we do this over
- lirik lagu すりぃ (three) - ビーバー (beaver) (すりぃ ver.)
- lirik lagu robyn hitchcock - high on yourself
- lirik lagu cc cowboys - tegneseriekjærlighet
- lirik lagu athame occult rock - mother nature i
- lirik lagu ynkeumalice - gum desk