lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu þar sem gemsarnir aldrei þagna - bubbi morthens

Loading...

útúr húminu kemur dauðinn, kveður þig á sinn fund
köldum rómi tilkynnir, upprunnin er þín stund
fyrir utan býður djöfullinn,og brosir undur blýtt
bugtar sig og hneigir með hárið, kolsvart sítt
þú sest inn í limmuna sem leggur hljóð af stað
við stýrið situr drýsill sem hatar orðið, bað
þú spyrð: er ég dauður, eða dreymir mig þetta bull?
hann svarar: drekktu vinur þín flaska er ennþá full

í helvíti er svört sól, alkóhól, allrahanda kynlífstól
eiturlyf sem brenna þig upp til agna
ríki mitt er king zise
extra large, jumbo, turbo, djúsí, næs
og í helvíti gemsarnir aldrei þagna

inn í bílnum finnst þér hitinn orðinn ískyggilega hár
í speglinum sérðu framan í þig, þú ert að verða blár
þú hneppir frá þer skyrtunni og skilur hver staðan er
skjálfandi, þurrkar svitann framan úr þér
þið keyrið inn í myrkrið, moldarfnykur í lofti er
martröðin vælir stjórnlaust í höfðinu á þér
hinn fallni engill hvíslar í eyrað ofur lágt
engin leið til baka, það er bara þessi átt

í helvíti er svört sól, alkóhól, allrahanda illskufól
halltu áfram að bölva og ragna
vеrtu velkominn ljúfurinn
líkkaldi stúfurinn
í helvíti gemsarnir aldrеi þagna
þér er boðið upp á kókaín og útglent, rökuð klof
og endalausa fullnægingu, þar til þú færð flog
hér enda engar nautnir og nóttin er endalaus
hann nýstir þig sársaukinn og hjartað í þér fraus
hér átt þú nóg af seðlum sem þú getur aldrei eytt
engann færðu svefninn, hér er allt svo rakt og sveitt
hér er hann harður eins og grjót, gýs eins og hver
gráttu núna gæskurinn, þín staða vonleus er

í helvíti er svört sól, alkóhól, ormaétin barnaból
þín býður djöfulls ofboðsleg pína
þín mesta martröð við þér gín
bróðir reyndu að njóta þín
og í helvíti er ætíð opin gemsalína

það er furðulegt en þú finnur, tíminn stendur kyrr
þú ert fastur í lókali sem hefur engar dyr
hér er enginn endir, hér endar ekki neitt
of mikið af öllu og þú getur engu breytt
þú veist þú þarft að þjóna húsbónda þínum vel
þú valdir í lifandi lífi, ráða þig hjá hel
of seint að hrópa á hjálp, þín býður þetta bál
fyrir löngu síðan seldir þú dýrinu þína sál

í helvíti er svört sól, alkóhól, allrahanda morðtól
helvíti er við allra hæfi
við sækjum þig í leigubíl
leyfum þér að halda þínum persónulega stíl
og í helvíti dugar gemsinn heila mannsævi


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...