
lirik lagu skjól hjá mér þú átt - bubbi morthens
fyrir löngu síðan gekk ég grýttan veginn einn
gott ef ekki rigndi og í skó mínum var steinn
það var komið fram í rökkur og rokið hvæsti hátt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
þá sagði hún og brosti, skjól hjá mér þú átt
þegar svartnættið lagðist sálina mína á
sólin hvarf í sortann og í myrkrinu ég lá
þegar duftið hvíta dró mig neðar smátt og smátt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
aldrei hækkaði hún róminn né reyndi nokkurt sinn
reka mig út á ísinn, heldur kyssti mína kinn
sama hvað ég gerði, sama hvað ég lagðist látt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
einn daginn beið mín lífið og ég lærði það fljótt
að leggja einn á veginn, til þess mig skorti þrótt
þar sem ég sat vel móður og hengdi höfuð látt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
þá sagði hún og brosti. skjól hjá mér þú átt
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu awai niwa - shxxkoh1da
- lirik lagu μελωδία του ανέμου (solo ver.) - george filippousis
- lirik lagu rotten fish - blowfly
- lirik lagu popper para estar bonita - milky dolly
- lirik lagu tattoo - lipstickerz (립스티커즈)
- lirik lagu caricature [unreleased] - skylar masse
- lirik lagu zwei spuren im schnee - vico torriani
- lirik lagu rockstar (slowed) - kill eva & encassator
- lirik lagu 그녀는 (she) - crucial star (크루셜스타)
- lirik lagu heelstomper - six impala