lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu sigurður guðmundsson & memfismafían - nú mega jólin koma fyrir mér

Loading...

á fyrsta sunnudegi aðventunnar
ég ek til kaupmannsins í einum rykk
því þó að fjárhirslurnar gerist grunnar
ég geri vel við mig í mat og drykk
ég kaupi sætabrauð og súkkulaði
súpur og ávexti og kjöt og smér
klyfjaður góssi burt ég held með hraði
og hleð í skottið allskyns gúmmelaði
– þá mega jólin koma fyrir mér

á öðrum sunnudegi aðventunnar
alhliða hreinsunarstarf á sér stað
þá söngperlur ég söngla, ýmsum kunnar
og síðan læt ég renna í funheitt bað
þá allar spjarirnar ég af mér reyti
og öllum deginum við þvotta ver
ég skrúbba tærnar, skegg og lubba bleyti
ég skef úr eyrum, svonað mestu leyti
– þá mega jólin koma fyrir mér

á þriðja sunnudegi aðventunnar
andlegu hliðinni ég geri skil
en til að virka skulu viskubrunnar
sko vera rakir, eða þar um bil
það stoðar lítt að sitja einn með ekka;
örlögum heimsins velta fyrir sér
en ég verð heimsins mеsta mannvitsbrekka
á meðan ég fæ bara nóg að drekka
– þá mеga jólin koma fyrir mér
á fjórða sunnudegi aðventunnar
ég æði um húsið til að gera fínt
en skreytingarnar eru ansi þunnar
því árans skrautið virðist mest allt týnt
ég skvetti sápuvatni á gólf og glugga
og gref upp nokkuð heillegt sængurver
við bústnum rykmaurum ég reyni að stugga
og ryð svo þvottinum í næsta skugga
– þá mega jólin koma fyrir mér

loks þegar aðfanganna dag að drífur
ég dreg fram spariföt og flibbahnapp
svo þegar skyrtukraginn stendur stífur
ég stari í spegilinn og gef mér klapp
því jólin eru tími til að þakka
og taka ofan fyrir þeim sem ber
meðan ég hef matarögn að smakka
og meðan ég fæ risavaxinn pakka
– þá mega jólin koma fyrir mér


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...