lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu yry – huldukóngur

Loading...

ríðandi og rekandi yfir sand
myndi synda höfin með þitt perluband
ég vil sofna, vil bráðna í þitt land

og horfa upp í hið dýpsta augnsamband

hvenær munt þú taka við mér,
elsku huldukóngurinn minn?
hvenær munt þú birtast mér?
á morgun eða hinn?
já, viljugur er andinn…

í gegnum þoku og í gegnum vind
vil horfa á þig, en sé bara spegilmynd
mæti þér loksins í dimmri bjarklind
þú myrkrið mikla, fegursta ímynd

hvenær munt þú taka við mér,
elsku huldukóngurinn minn?
hvenær munt þú birtast mér?
á morgun eða hinn?

stór er hindrun tungumáls
samt mun ég dansa frjáls
í ríki hjartabáls
lífsins annáls
vil vera ein með þér
þar sem enginn sér
við vorum saman hér
en þú slepptir mér

hvenær munt þú taka við mér,
elsku huldukóngurinn minn?
hvenær munt þú birtast mér?
á morgun eða hinn?
hví erum við aðskilin…


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...