
lirik lagu logar - minning um mann
[textar fyrir “minning um mann”]
[vísa 1]
nú ætla ég að syngja ykkur lítið fallegt ljóð
um ljúfan dreng sem fallinn er nú frá
um dreng sem átti sorgir en ávallt samt þó stóð
sperrtur þó að sitthvað gengi á
í kofaskrifli bjó hann, sem lítinn veitti yl
svo andvaka á nóttum oft hann lá
þá portúgal hann teygaði, það gerði ekkert til
það tókst með honum yl í sig að fá
[viðlag]
þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann
drykkjuskap til frægðar sér hann vann
[vísa 3]
börnum var hann góður, en sum þó hræddust hann
þau hæddu hann og gerðu að honum gys
þau þekktu ei, litlu greyin, þennan mæta mann
margt er það sem börnin fara á mis
[viðlag]
þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann
drykkjuskap til frægðar sér hann vann
[vísa 4]
munið þið að dæma ei eftir útlitinu menn
en ýmsum yfir þessa hluti sést
en til er það að flagð er undir fögru skinni menn
fegurðin að innan þykir best
[viðlag]
þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann
drykkjuskap til frægðar sér hann vann
[vísa 5]
nú ljóðið er á enda um þennan sómavein
sem að þráði brennivín og sæ
hann liggur nú á kistubotni og lúin hvílir bein
í öskuhrúgu í vestmannaeyjabæ
[viðlag]
þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann
drykkjuskap til frægðar sér hann vann
þið þekktuð þennan mann, þið alloft sáuð hann
drykkjuskap til frægðar sér hann vann
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu andrew france - sun shines through
- lirik lagu fufanu - your collection
- lirik lagu dj vilão ds, dj woody original & dj waan - mega especial do coqueiro 4.0
- lirik lagu glazyhaze - tears
- lirik lagu dariboy - m1m0
- lirik lagu headcheese - whipping post
- lirik lagu machina aeon - hollow eyes, hollow skin, hollow heart, hollow grin
- lirik lagu alexis reocreux - j’ai changé
- lirik lagu mironas stratis - θα ονειρευτώ για μας (tha oneirefto gia mas)
- lirik lagu keni titus - pretty in pink