lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu ljótu hálfvitarnir - hálfvitavalsinn

Loading...

við hafið ég sat eins og harðsoðið egg
hugurinn þungur og þvældur
hart er að komast á haltrandi legg
harðsoðinn bæði og spældur

ég vildi ganga í sjóinn og svo
sökkva og afþakka kransa
er hamingjan mætir með heiðara tvo
snyrtir og ástvalds mig stansa:
„það sem þú þarft er að dansa!“

og ég svíf
þett’ er allt annað líf
ég er frjáls
var bún’ að fá upp í háls

horfin er fýlan og fúllyndið með
nú ríkir gleðin og galsinn
nú gildir hálfvitavalsinn

yfir mig h~llist sú himneska ró
sem hrekur burt allt sem vill þyngja
skapið og beiskjan sem fyrr í mér bjó
ég búinn er henni að kyngja
núna er málið að syngja!
og ég syng
og dansa hring eftir hring
þett’ er grín
það er eins og ég sé í vín!
og nú bætast í hópinn þeir heiðarar báðir og harry minn klein
tárvotir heilsumst og teljum svo í
und jetzt singen wir alle falsch in
das lied mann kallt „hálfvitavalsinn“

það er stuð
og ég er viss um að guð
dillar sér
hvar sem hann er
og еf þér gengur illa, eins og mér gekk, að ganga um glеðinnar dyr
skaltu berja á dyrnar og bíða svo smá
spyrna svo fæti í falsinn
og fljúga í hálfvitavalsinn!

(la la laaa…)

og ef þér gengur illa, eins og mér gekk, að ganga um gleðinnar dyr
skaltu berja á dyrnar bíða svo smá
og spyrna svo fæti í falsinn
fljúga í hálfvita…


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...