lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu elín hall - barnahóstasaft

Loading...

[verse]

ég sagði þér að mér væri kalt
þú réttir mér götusand og salt
ég fann það á bragðinu
það minnti mig á barnahóstasaft
en það var allt

þú sagðir mér að ég væri grimm
og tungumál ástarinnar fimm
en þú getur haldið orðum þínum
í teskeið við munninn minn
þau fara ekki inn

[chorus]

æj viltu kyssa á bágtið smá?
kannski það virki er líður á
æj segðu að það sé ennþá
pínulítið pláss í fangi þér
á meðan ég næ mér

[verse]
læknirinn hringdi í mig í gær
sagði að við værum orðnar tvær
ein sem að saknar þín
en önnur sem að kannast ekkert við
að missa þig

svo ég í hitakófum svíf
skar þögnina með vasahníf
því ég skal tala öllum tungum
sem í þessum heimi eru í
ef þú kemur á ný

[chorus]

æj viltu kyssa á bágtið smá?
kannski það virki er líður á
æj segðu að það sé ennþá
pínulítið pláss í fangi þér
á meðan ég næ mér

æj viltu kyssa á bágtið smá?
kannski það virki ennþá
æj segðu að það verði alltaf
pínulítið pláss í fangi þér
þegar ég næ mér


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...