
lirik lagu bubbi morthens - tómas hólmgöngukappi
mig dreymdi að tómas tvíburinn kæmi til mín
talandi um jesús bróður sinn
að hann yrði að fylgja honum alla leið
ég yfirgefa mun móður og föður minn
og englarnir sungu leið þín verður greið
það var um miðjan dag og hitinn fór hækkandi
hjarta mitt þráði eilífan frið
við settumst í skuggann og bróðir minn blíður
mælti: á morgun tómas förum við
og englarnir sungu tíminn þinn líður
ég vissi að leiðin lá í átt til krossins
lögmálið yrði hann að uppfylla
við vorum eltir fram í svartasta myrkur
þeir sögðu hans orð væri trúvilla
og englarnir sungu trúin er þinn styrkur
ég fylgdi mínum bróður allt til enda
einn á krossinum dó hann snauður
pétur hann fór í felur er haninn gól
og júdas bróðir minn lá á blóðvelli dauður
og englarnir sungu um herrans sól
maría magdalena lærisveinn jesú
leysti hann niður, þvoði hans sár
hún þorði meðan við hinir hlupum flestir í felur
fyrir það hlaut hún blessun um aldir og ár
englarnir sungu trúin kærleikann elur
báðir vorum smiðir eins og faðir okkar
til indlands ég fór, höll að smíða
græðarinn vissi, drottinn mælt hafði til mín
gondoforus konungur mátti ekki bíða
og englarnir sungu mikil verða laun þín
ég rak út djöful úr skurðgoði konungs
í frelsarans nafni ég boðaði trú
þeir reistu hús guðs yfir gröfina mína
og yfir fljót efans ég reisti þeim brú
og еnglarnir blésu í lúðrana sína
og englarnir blésu í lúðrana sína
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu r.n.a riley - dead presidents
- lirik lagu opacas - rainbow cloud
- lirik lagu jay5ive & mdot 59 - yellow tape
- lirik lagu wiiince - tired hands
- lirik lagu fred & fabrício - horizonte azul/ pior é te perder
- lirik lagu édith piaf - les deux ménétriers
- lirik lagu 重音テト (kasane teto) & aira (jpn) - q。
- lirik lagu hzrn - antidote travis scott
- lirik lagu code80 - 777 (snippet 10.10.250*
- lirik lagu nick kopel - dark nights never last