lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - syndandi í hafi móðurlífsins

Loading...

með þinn ótrúlega munn
þitt boxaranef
bros sem enginn fær staðist
þokukend augun þau segja mér
við þig verður ekki barist

við sátum við eldinn
og þú spurðir mig
„hvers vegna varstu aldrei glaður?”
ég gat sagt þér allt
um sjálfa þig
en gat ekki sagt
að ég væri skemmdur maður

því ég er syndandi í hafi móðurlífsins
og sé ekki, finn ekki land
raddirnar í myrkrinu véluðu mig
og ég synti yfir á þeirra band

útbreiddur faðmur
ég kæmi ef ég þyrði
en trúin er eins og tælandi svell
prestar héldu þér niðri á skipum
þau voru með tattóveruð segl

ég gekk inn í garðinn
og ég sá ekki neitt
nema rotnandi blómahaf
ég leitaði og leitaði að visku mannsins
sem í rotnandi blómunum svaf
upp á fjallinu nutum ásta
horfðum á ljósin
sem hraunkvíslar bylgjuðust sitt á hvað
þú sýndir mér undir kvikuni
deyjandi menning
sem ljótleikan ofar öllu tilbað

út úr skautinu skreiðst þú veinandi
í augum þínum logaði bál
prestarnir glottandi blessuðu þig
og gáfu þér nafnið sál


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...