lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - síðasti dansinn

Loading...

þennan síðasta dans vil ég svífa með þér
eina svipstund við tónanna klið
gleyma brimróti´ og nótt
gleyma að bryggjuna við
liggur bátur sem stefnt skal á mið
láta yl þinn og bros tendra í æðum mér glóð
til að orna við draumljúfri þrá
þegar stillt er á sæ, þegar stjarnanna skin
gulli stráir um byrðing og rá

og er síðasti tónn þessa seiðmjúka lags
hefur svifið frá titrandi streng
með hans bergmál að fylgd
og með bros þitt í sál
niður bryggjuna hljóður ég geng
marga svartnættis vakt þennan síðasta dans
mun ég svífa með þér yfir dröfn
gegnum svarrandi brim, heyra seiðmjúkan tón
kalla sjómann í draumanna höfn


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...