lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - sandurinn í glasinu

Loading...

trúirðu því ég vona þú komir aftur
að við tvö gætum orðið eitt
elskað með þér, deyja síðan sáttur
hverfa í algleymið, verða ekki neitt

sjá þig brosandi þekkja augun aftur
fara höndum um eirlitað hár
fá að hvísla nafn þitt aftur og aftur
vona að augnablikið verði sem þúsund ár

en sandurinn í glasinu skeytir ekki um mig
flæðir upp í vit mín, drekkur minn þrótt
já, komdu og taktu mig milli handa þinna
og breyttu deginum í nótt

ég vona að leið þín liggi til mín
ljósið í glugganum lifir í nótt
það mun lifa þar til ég sé til þín
þá fyrst mun ég sofa rótt

sjá þig brosandi þekkja augun aftur
fara höndum um eirlitað hér
fá að hvísla nafn þitt aftur og aftur
vona að augnablikið verði sem þúsund ár

en sandurinn í glasinu skeytir ekki um mig
flæðir upp í vit mín, drekkur minn þrótt
já, komdu og taktu mig milli handa þinna
og breyttu deginum í nótt


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...