
lirik lagu bubbi morthens - paranoia
hvernig er að vakna, sjá skugga líða á brott?
það er einhver á bak við dyrnar, þú finnur á þig er horft
draumarnir eru flúnir úr hvítu skálinni
hvernig er að vakna upp með fingraför á sálinni?
úti hamast vindurinn, þú kúrir þig undir sæng
á glugganum hamast stúlkan þín eins og hrafn með brotinn væng
þú þorir ekki að opna, í augunum sérðu blóð
fyrir utan heyrir fæturna traðka paranoiu slóð
angurværir tónar nálgast ofur hægt
barnið í hjarta þínu löngu orðið er hrætt
búkar með engin andlit stjórnlaust líða um
ó ef þú aðeins aftur gætir náð ljúfu draumunum
þú manst eftir konunni á h~rninu sem seldi mönnum tár
mönnum sem voru dofnir, höfðu ekki grátið öll sín ár
hún er hætt að koma, þurr augun laugar ei meir
uppsprettan er þurrausin en það vita ekki þeir
hvernig er að vakna, sjá skugga líða á brott
skugga sem ekkert eftir skilja, samt krefjast að á þá sé horft?
draumarnir eru flúnir úr hvítu skálinni
ó segðu mér, hvernig er að vakna upp með fingraför á sálinni?
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu cj jeff - thinking about you
- lirik lagu moğollar - adiloş (2004)
- lirik lagu yarkie - losing-knights
- lirik lagu vertile & rebelion - closer to heaven
- lirik lagu kurai bandz - ride or die
- lirik lagu eqric, pharaøh & ceara cavalieri - the cure
- lirik lagu thurinay - diss for dolphin_rinat
- lirik lagu jade nicole - the queen bee (artpop sessions)
- lirik lagu polo g - millions (snippet)
- lirik lagu sada baby - saibaman