lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - með vindinum kemur kvíðinn

Loading...

fyrir vestan er veturinn stríður
vokir yfir byggð og tíminn líður
með sólvana daga, dapurlegan róm
dreymir ekki alla himnanna blóm

vegirnir lokast, veturinn hamast
vörnin er engin, þorpið lamast
menn horfa upp í hlíðina, sjá ekki neitt
himinn og jörð renna saman í eitt

dag eftir dag snjónum kyngdi niður
dúnmjúk mjöll, þessi hvíti friður
í rökkrinu þorpið sýndist svo smátt
svo fór hann að hvessa úr annarri átt

og með vindinum kemur kvíðinn
úti er kolsvört hríðin
og fjallið það öskrar svo fellur öll hlíðin
og húsin þau hverfa í kófið

eitt andartak stóð tíminn kyrr
æddi síðan inn um glugga og dyr
hreif burt vonir, reif upp rætur
einhvers staðar engill grætur

hvers vegna hér ~ menn spá og spyrja
spurningar flæða hvar á að byrja
fólkið á þig kallar kristur
kvölin nístir bræður og systur
tárin eru leið til að lækna undir
lífið er aðeins þessar stundir
gangverk lífsins þau látlaust tifa
og við lærum með sorginni að lifa

og með vindinum…


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...