
lirik lagu bubbi morthens - mb. rosinn
á netavertíð austanlands
ég fékk mitt fyrsta kikk
fullan kassa af séniver
við fengum fyrir slikk
við rifum strax af tappana
það þoldi enga bið
heltum oní kappana
að landans drykkjusið
æddum svo á dansleikinn
þetta herjans lið
brutum allt og brömluðum
gáfum engu grið
í svita, slori og áfengi
við fílum okkur best
áhöfnin á rosanum
sem aldrei edrú sést
ég man þar kom að lögga ein
sem þóttist vera stór
samt rænulaus og alblóðug
hún heim af dansleik fór
er tók~m við upp hnífana
og grenjuðum í kór:
eigum við að opna á ykkur æðarnar
svo fljóti um blóðsjór
þeir veinuðu af skelfingu
sem heyrðu þessi hljóð
enda var það ekki löggan ein
sem heim af dansleik fór
þegar allir sveitatöffarar
í þessu plássinu
voru kýldir út úr kofanum
með stofustássinu
á eftir stóðu meyjarnar
í ofboðs hrifningu
slefuðu í fang okkar
á miðju gólfinu
við tók~m þær og skveruðum
meðan við höfðum nokkurn mátt
síðan við aftur hölluðum
þær sögðu heldur fátt
er líða tók á nóttina
og kassinn tómur var
við tók~m allir sóttina
og hófum lеit að bar
brutumst inn til læknisins
og börðum hann í spað
mölvuðum upp hillurnar
og átum pillurnar
þaðan niður í kaupfélag
í kökudropana
en síðan beint á pósthúsið
í allar kröfurnar
í svita, slori og áfengi…
er löggan kom og sótti okkur
um miðjan næsta dag
við lágum allir steindauðir
við úldið grútarkar
í járnum vorum sеndir suður
svona einn og einn
stungið inn á níuna
en það þótti heldur seint
en kallinn oss með símtali
fékk strax leysta út
það kemur fyrir bestu menn
að missa túr og túr
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu yøung sadzzz - armageddøn
- lirik lagu hallelujah the hills - failure's my fuel (9 of clubs)
- lirik lagu late november - bird brain
- lirik lagu richdanfamous - devil biggest opp
- lirik lagu shankz - stars align
- lirik lagu church tongue - nothing lost
- lirik lagu sylvie vartan - don't let go
- lirik lagu savanna brooks - burning up the night
- lirik lagu shift k3y - love line (a-star remix)
- lirik lagu romsii - mentir