
lirik lagu bubbi morthens - leiðin til san diego
ég veit un nætur sem taka öllum töfrum fram
og trú mín á ævintýrið lifir
undir ágústsólinni er engan skugga að finna
ættum við að keyra strax yfir
landamærin þar sem fótspor finnast ennþá
falin milli rústanna ásamt bergmáli okkar beggja
á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt
og sólin hvítt leiftur milli hálfhrundra veggja
ég þekki konu sem tekur öllum töfrum fram
og ég trúi á hana eins og lífið
það er tíbrá yfir veginum og veðrið er ljúft
og vindurinn hvíslar: svífið
fljúgið yfir draumana sem engan dreymir lengur
dansiði við álfana sem fæstir fá að sjá
á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt
og við hlið mér er kona með augun svo ótrúlega blá
ég þekki manninn sem þráir þig ofar öllu
og ást hans er kyrrlát, hljóð
undir fjólubláum himni er hlátur hans þýður
og hafið er bláhvítt ljóð
þar sеm vegurinn endar tekur еyðimörkin við
efst á hóli rauðum má rústir ennþá sjá
á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt
og hjarta mitt f~gnar þessari aldargömlu þrá
í þessari víðáttu af sandi kýs sólin að halla sér
og sögu okkar finnum við þar
bráðum koma skuggar þess liðna og leita
að lífinu sem eitt sinn var
það eru til nætur sem taka öllum töfrum fram
og ég tíni stjörnur úr hárinu þínu síða
á þjóðvegi númer eitt
er öllum frekar heitt
á malbikinu er tíminn stundum lengi að líða
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu lil hu$nu - kaktüs kross
- lirik lagu body water - fight night
- lirik lagu no cigar - chantilly
- lirik lagu vanitas (uk) - i'm here (from "sonic frontiers")
- lirik lagu darwin (band) - man vs machine
- lirik lagu sofian medjmedj - p.s.
- lirik lagu mabiva - something
- lirik lagu pinkblxxd - fuck drugs
- lirik lagu lyemma - liwanag sa daan
- lirik lagu fckedupgeek - only dead fish follow the stream