lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - jakkalakkar

Loading...

þau bíða vokandi sem villidýr um nætur
með vonleysi í augum og uppslitnar rætur
þar sem óttinn býr í bjóstum manna
með blóðbragð á tungu milli gulra tanna
þar sem neongrænir dagar dragnast á fætur

jakkaklæddir menn
kúra bak við borð
með græna ljósið frá tölvunni
éta tölvuprentuð orð

hér fórna menn öllu fyrir nótt á nálaroddi
þeirra náttfleti er gatan og víman þeirra koddi
hér er sprautan hamingja hjartans auða
og hlekkir lífsins fylgja þeim til dauða
hér nærist eymdin á eigin vaxtarbroddi

hér má sjá hús sem hýsa skugga þeirra manna
sem heiminum stjórna milli rándýrshvítra tanna
sem vandanum eyða með einu striki
og allur þeirra pappír síðan safnar bara ryki
og flokksvélin lofar að láta málið kanna

þegar tíminn er enginn til að elska eða brosa
og hver einasti þingmaður hefur nefið hans gosa
og fólkið vinnur myrkranna á milli
og margtuggnar klisjur keppa um fjöldans hylli
þá halda menn að víman muni vandamálin losa


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...