lirik lagu bubbi morthens - íslenskir sjómenn (in memorium)
Loading...
 
 
þennan dag var rjúkandi rok og kvika
öskugráa öldu við himin bar
trollið var fast og við fundum slinkinn
sem færði okkur á kaf í öldurnar
vírarnir strekktir sem strengir á gítar
lögðumst á hliðina ofurhægt
síðan hvinur í lofti er vírarnir brustu
augnablik var eins og hefði lægt
brimaldan hvíta berðu þeim kveðju
sem biðu heima eftir mér
segðu þeim ég hafi hugsað til þeirra
og í huga mínum var myndin af þér
uppi á hamrinum fólkið hópaðist saman
horfði á skipið þokast nær
með lófann krepptan um stálið ég starði
á brimöldunnar gráhvítu klær
við klettabergið beið okkar gröfin
beðurinn kaldi þennan dag
skipið njörvað nötrandi á skeri
að gliðna í sundur við öldunnar slag
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu big ant dog & crankama - crankanto (awesome majestic pt 3)
 - lirik lagu kurt92 - tumblr
 - lirik lagu nuclear summer - oceanic references
 - lirik lagu la santa grifa - déjate querer
 - lirik lagu rk - 4 saisons
 - lirik lagu jeune morty - manhattan
 - lirik lagu weglobe - between the waves
 - lirik lagu trade l (이승훈) - kite
 - lirik lagu gangsta boo - talk nasty
 - lirik lagu angel canales - la vida es una caja de sorpresas