
lirik lagu bubbi morthens - í nafni frjálshyggju og frelsis
ekki er neinn réttlátur ekki neinn
ekki er neinn vitring að sjá
fæstir leita lengur herrans
sem líf sitt gaf fyrir þá
nú ráða ræningjar jörðinni
rándýr sem heimta blóð
tortíming, eymd eru allsstaðar
ekkert líf þrífst í þeirra slóð
veg friðarins vilja ekki þekkja
vargar sem fólkið blekkja
gera börnin að morðingjum
mæður að hræætum
feður að aumingjum
sundra fjölskyldum
allt í nafni frjálshyggju og frelsis
þú sem felur þinn eigin ótta
elur hatur í brjósti þínu
lítur aldrei í augu barna þinna
sem allt skilja í hjarta sínu
óspillt eru ennþá og saklaus
eftir hvurju ertu að bíða
þau þurfa á aga og ást að halda
fálæti þitt fyllir þau kvíða
veg sannleikans viltu ekki þekkja
lygina lætur þig hlekkja
samviska þín sefur
græðgin ekkert gefur
dóminn enginn tеfur
hrokinn þig hefur
blindað í nafni frjálshyggju og frelsis
þingmenn fеður fólks og þjóðar
fullir af spillingu verja
rétt þeirra ríku til þess að valta
yfir ráðþrota fólkið og berja
trúlaus lýðurinn lánlaus reikar
lamaður, fullur af dofa
prestarnir prúðir í vinnuna mæta
þeir vekja engan sem vill sofa
veg réttlætis vilja ekki þekkja
í vörninni þeirra er skekkja
í hjartanu vita
að lygin kostar svita
rænir þá næturhita
engill dauðans mun þeirra vitja
allt í nafni frjálshyggju og frelsis
menn trúa á gullið, guð er ekki til
en gott er að nefna hann stundum
fullir þeir eru bölvunar og beiskju
á bræður sína siga þeir hundum
en guð er til, sama hvað þeir segja
en hl~staðu á þegar þeir tala
þeir mæla það sem hentar hverju sinni
á fáfræði og fordómum ala
veg ljóssins vilja ekki þekkja
vargar sem fólkið blekkja
hræsnin í hásæti
lýðskrumalæti
rotið innræti
hýenur í leit að æti
allt í nafni frjálshyggju og frelsis
dómskerfið kalkað grafarstæði
kuldinn þar smælingjann bítur
unga manninn á hraunið senda
meðan skilorðið hvítflibbinn hlýtur
einn daginn þeir þurfa að svara til saka
sú nótt mun reynast þeim erfið
þegar undirstöður alls munu hrynja
heimurinn þeirra og kerfið
veg friðarins vilja ekki þekkja
vargar sem fólkið hlekkja
gera börnin að morðingjum
mæður að hræætum
feður að aumingjum
sundra fjölskyldum
allt í nafni frjálshyggju og frelsis
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu naya® - palavras são poder
- lirik lagu sejwid - pb$ (renta)
- lirik lagu macula dog - i love it
- lirik lagu javisdobs99 - bet u never seen
- lirik lagu miguel poveda - hielo abrasador
- lirik lagu finalbossfight! (band) - i have to go now (my planet needs me)
- lirik lagu michael jackson - jackson 5 medley - live from auckland 1996
- lirik lagu whitesnake - slow an' easy (uk mix)
- lirik lagu tablez & oddwin - another day...
- lirik lagu люблю лето (love summer) - заебало (fucked up)