
lirik lagu bubbi morthens - hverjum geturðu treyst?
efinn kemur þögull sem þjófur um miðja nótt
þrengir sér inn í sálina inn að kviku
þeir sem voru trúaðir hörfuðu hljótt
meðan helgir menn söfnuð sinn sviku
og allt sem þú lærðir og allt sem þú veist
er einskis virði ef hjartanu blæðir
hverjum geturðu treyst, hverjum geturðu treyst
hverjum geturðu treyst, hverjum geturðu treyst
ef krossinn aðeins börnin sín hann hræðir
vantrúa fólkið hefur það loksins lært
lausnir klerkana duga ei lengur
þín barnatrú og allt sem þér var kært
er eins og munaðarlaus drengur
og allt sem þú trúðir og allt sem þú veist
er aðeins klisjur úr munni þeirra
hverjum geturðu treyst, hverjum gеturðu treyst
hverjum geturðu trеyst, hverjum geturðu treyst
ef þjónninn hefur svikið sinn herra
er blinda kirkjunnar að sigla henni í strand
öll sund lokast það er svarta bylur
þó að stýrimaðurinn bendi bræður ég sé land
er það boðskapur sem skipstjórinn ekki skilur
og allt sem þú lærðir og allt sem þú veist
er einskis virði er kvölda tekur
hverjum geturðu treyst, hverjum geturðu treyst
hverjum geturðu treyst, hverjum geturðu treyst
ef hirðirinn aðeins lömbin burtu rekur
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu deus latis - pourquoi
- lirik lagu ruhe & bit - auge
- lirik lagu lil flash$ (ukr) - paradise
- lirik lagu slattcrank - she knows
- lirik lagu رشا رزق - المحقق كونان - rasha rizk
- lirik lagu dara reneé - imma do it
- lirik lagu バウワウ (bow wow) [jpn] - theme of bow wow
- lirik lagu rraideenn - all black fit
- lirik lagu love nut - everchanging world
- lirik lagu uta bresan - ich will nach hause zu dir