
lirik lagu bubbi morthens - hann er laxveiðisjúklingur og veit ekki af því
ráðherrann er lygari, lævís og flár
loforð hans duga í hundrað ár
geymir laxa í baðinu og börnin eru sár
í boðum eru þau óhrein
heimskur eins og þurs, þykkur eins og fíll
þrátt fyrir það er yfir honum stíll
hann veit hvað er mótorhjól, hann veit hvað er bíll
og hann veit að börnin eru óhrein
því hann ræktar laxa í baðinu hjá sér
bráðum mun hann rækta þá heima hjá þér
og þeir stökkva upp úr klóinu, karlinn dag einn hér
og kvarta: börnin eru óhrein!
ráðherrann er brandari og börnin hrópa vá!
best þykir hann njóta sín í stórri djúpri á
og bankarnir þeir elsk’ann og allir það nú sjá
og ennþá eru börnin óhrein
ráðherrann er heilagur, hvað heldur þú?
hausinn hans er dýrgripur, segir gömul trú
og hann byggir í stofunni laxastiga og brú
stórkostlegt hvað börnin eru óhrein
hann fékk í vöggugjöf vissulega það
en ég er ekki viss hvað það hеitir, svo að
ég hringi strax í börnin og býð þeim í bað
og ég býst við þau komi óhrein
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu mln - my life a movie
- lirik lagu ghost chant - bitter shade of grey
- lirik lagu feelneo - エガオガイチバン (egao ga ichiban)
- lirik lagu kreeespy! - забыл!
- lirik lagu chrisongs nest - no hay paz
- lirik lagu f.charm - terminus
- lirik lagu bubbi morthens - jón pönkari
- lirik lagu the graveltones - world on a string
- lirik lagu горечь (gorech') - толстый и голый (fat and naked)
- lirik lagu sonu nigam - tharo roop