
lirik lagu bubbi morthens - guli flamingóinn
á kvöldin þegar regnsvala kulið blæs frá hafi
kvikna neonljósin og strákar verða menn
nóttin gerist þykk og þung af spilltu blóði
og þorstinn brennir klofin á þeim sem vaka enn
á börunum er sólskinið borið fram í glösum
brosin eru á útsölu og kosta varla neitt
nóttin selur hamingju handa þeim sem vilja
og hláturinn er fyrir þá sem öllu hafa eytt
stígum dansinn strákar
stígum dansinn strákar
díana mun svo lesa okkur ljóð
stígum dansinn strákar
stígum dansinn strákar
stígum dansinn meðan samviskan er hljóð
í strætinu sem geymir bergmál hárra hæla
er háðslegt glott á skilti: þinn draum þú getur sótt
neðar nokkrum metrum í myrkri eru dyrnar
þar mætast dreggjar glasanna á vörunum í nótt
innan dyra fölhvítir skuggar reika í rökkri
rándýrskjaftar bíða opnir bak við þil
þarna rætast draumar í kynjaveröld karla
kannski ertu á himnum en það gerir ekkert til
frá portúgal hún flæktist þessi furðulega nikky
með föllnum englum, hún var ein af þeim
hún flökti milli gestanna sem gátu ekki talað
gefandi öllum leyndarmál sem fylgdu henni heim
ljósin sviðið skerpa og skvaldrið gleypir þögnin
skrýddar háum hælum stelpuhræin ganga inn
og þær strjúka hver aðra og elskast líkt og klakar
og andlitin eru gleðisnauð með glimmer út á kinn
meðan tónarnir úr carmen týndust út í salinn
og töfrar kvöldsins liðu sem öldur út á sæ
urðu andlit gesta nakin og nautnaþrungin augu
nutust mött í básum með annarlegum blæ
díana orti ljóð um lífið sem hún þráði
og lygin var á sálinni sem mjúk rekkjuvoð
þau efni sem hún neytti til að nóttin yrði styttri
voru nánast hennar eina haldbæra stoð
að lok~m ljósin kvikna með kuldalegri birtu
kaffibrúnn dagur bíður ferskur eftir oss
hitinn úti er lamandi og sjórinn silfri þakinn
og frá sólinni sérðu falla glóandi rauðan foss
en á kvöldin þegar regnsvala kulið blæs frá hafi
kvikna neonljósin og strákar verða menn
þá gerist nóttin þykk og þung af spilltu blóði
og þorstinn brennir klofin á þeim sem vaka enn
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu prodii - too many shots
- lirik lagu 山本譲二 (george yamamoto) - 秋吉・青海 (akiyoshi seikai)
- lirik lagu gutter punk - the fever
- lirik lagu julian gray - dawn
- lirik lagu sostre! - almost breaking and entering
- lirik lagu w e r t e $ $ - прощание
- lirik lagu julleget - attack on titan-låten på svenska! (guren no yumiya)
- lirik lagu husbands & jw francis - weird curve
- lirik lagu fatelasts - you deserve it
- lirik lagu yanna g & chase n. cashe - my name