
lirik lagu bubbi morthens - fjólublátt flauel
þú varst kaldur og kyrrðin þig þakti
konulausan og tími þinn leið
regnvotar götur og gljáandi stræti
gátu aðeins aukið þína neyð
þú sást á vappi vængjaða skugga
voteyga með hvít augnhár
og dvergvaxið frík með fölgræn augu
og feitan trúð er seldi börnum tár
já, blásvartir hrafnar í hjartanu búa
þar hoppa þeir og krunka lágt
því síst af öllu vildu þeir vekja
vitund þína um miðja nátt
og þú skynjar í skelfingu þinni
skyndilega verður allt ljóst
ósnortin liggur gáta þín grafin
í götunni þar sem þú áður bjóst
hvar áttu að leita, liggur ekki fyrir
leyndarmálið er vel geymt
gamli hrollurinn þig heltekur aftur
í hverri íbúð þar er reimt
fékkst þér í pípu og púaðir stórum
pírðir augun, sljó og rauð
heila þínum vafðir í fjólublátt flauel
fannst tilveran vera grá og snauð
já, borgin er full af draugum, drengur
sem í dimmum skotum oft þar sjást
þeir töpuðu æskunni og ellinni líka
og eiga barasta skilið að þjást
í myrkrinu augun þín æla ljósi
ísaköld birtan var hrímgrá
þínar eigin hugsanir halda þér föstum
og höggva þig niður aftan frá
Lirik lagu lainnya:
- lirik lagu pablo pierrôt - devorar
- lirik lagu loïc rabache - lent demain
- lirik lagu emerson b. ocampo - for all i care
- lirik lagu yele - dentro l'armadio
- lirik lagu fpc kevin - chopsticks
- lirik lagu zorila - honey
- lirik lagu flowman - opulence
- lirik lagu ok go - rats & spit
- lirik lagu mely - dt
- lirik lagu guizo+ - filme