lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - færeyings þula (kidda)

Loading...

hingað bæði og þangað þó
þrálega höfum flakkað
og hjakkað
um öldurhús íslands
ölvuð stigið dans
korríró og dillidó
aldrei drukkið nóg
hverjum er það að þakka
þú eignaðist aldrei krakka
ekki mér ekki honum
þú glataðir öllum ævinnar vonum
þú kynntist öðrum konum
með kuldablik í auga
og svarta svarta bauga
sofið hér sofið þar
sofið hjá flestum seinast hjá mér
sofið hjá öllum seinast hjá mér
er ég ekki fríður
fjandanum grimmari en blíður
það svíður
réttu mér glasið góða mín
greyið drekktu þitt brennivín
ólukkan er örlög þín
argara gargara hættu þessu væli
þetta er okkar bæli
þitt æskublik er löngu horfið
lífið og lygin hafa sorfið
hjarta þitt og hjarta mitt
óttinn elskar hreiðrið sitt
hingað bæði og þangað þó
þrálega höfum flakkað
og hjakkað
aldrei slokknar þessi logi
logaði jafnvel skærast inni á vogi
ambara þambara þú ert ekki skýr
þvöglumælta kýr
það má vera að ég sé róni
ruglaður dóni
en systir hér sitjum við bæði
bundin þessu æði
sem leiddi okkur saman
einu sinni var það gaman
einu sinni þótti okkur gaman


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...