lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - ballaðan um kósakkastelpuna

Loading...

það er nóttinni líkt að leika sér
lævís í þögninni tefur
til mín englar villast og vilja kaupa af mér
vængina sem þú hefur

á kvöldin kemur ljósið, læðist til þín inn
leggur sig í rúmið þitt
það sefur vært og dreymir með daginn undir kinn
og dregur þig í myrkrið sitt

já þögnin sem þú alltaf hefur átt
sú sem aldrei sefur
hefur misst sína trú á mátt
takmark sitt aldrei gefur

gleðina finnurðu aldrei í óttanum hér
ellin hér flestu ræður
og hún tekur lítil börn og lífsþreytta að sér
lánar þeim nýjar mæður

með þitt fríða andlit engu þarft að kvíða
æskan er eilíft vor
ef þú vissir aðeins að allar stelpur bíða
vilja æstar fá að ganga í þín spor

beðið hefurðu bræðra þinna hér
sem bergmál og reynt að syngja
tónn þinn þótti f~gur í fyrstu trúðu mér
en falskur þegar klukkurnar hringja
vindurinn í hár þitt leggur leyndarmál sín
sem lykt af salti og sól
kvöldið mun aðeins koma til þín
kyssa stúlkuna sem það ól

línan milli vara okkar orðin er svo þunn
eldtungur úr loftinu sig teygja
vonir okkar rætast aðeins munn við munn
minnstu þess að ástin kaus að deyja

inná hóteli við lágum ljúfan mín
létum í nóttina krans
við elskuðumst og drukk~m dýrindis vín
daginn eftir fórst þú til frans

ég ráfa hér um gangana með gömlu börnin þín
gamall með slitnar rætur
hér getur þú fundið fögru orðin mín
fótalaus um dimmar nætur

í turninum þar sem hjartað hefur brotinn væng
heyra menn grátur en þegja
hér eru þrjú hundruð rúm sem reyndar vantar sæng
og rós í vatni að deyja

þó klukkan gangi tíminn stendur í stað
steglir mig á vísinn
ég sem hafði á toppinn klifrað, kraup og bað
kyssti síðan ósigur minn
þú ert vel lesin og leyndarmál þitt
læturðu í hlekkjum lofa
fórnarlömbum hjartans sem höfðu á þig hitt
fá að horfa á þig sofa

faðir þinn fór austur, ástin hans var þar
endalokin hófust hér
þín móðir var í felum en fæstir vissu hvar
og enn færri vita hver hún er

kannski kemur lukkan aftur einhvern tímann hér
ævi sína enginn veit
og ég get ekki þurrkað þrána úr huga mér
þrátt fyrir öll mín heit

sársaukinn dregur fram sem í felum var
finnurðu hvernig blóðið sýður?
ég var farinn elskan áður en ég fékk svar
enginn hryggbrotsins bíður

tíminn líður hægt svo hægt ljúfan mín
maður heyrir grasið gróa
af trjánum óhöppin tíni ég mín
meðan tækifærin burtu frá mér róa

fyrir utan þessa veggi er veröld þín
ég veit allt um það
fyrir innan þessa veggi er draumaveröld mín
og þú veist allt um það


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...