lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens - afkvæmi hugsana minna

Loading...

afkvæmi hugsana minna hl~sta ekki lengur á mig
halda fyrir mér vöku og vilja láta annast sig
í höfði mínu liggja göng inn í gula salinn víða
gönguferð á múrum hugans er svo lengi að líða
svo ég ligg bara hér svefnvana og syng í hljóði lag
og syndi gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag

skuggar daganna minna í myrkrinu tala um þig
og minnast á brotin loforð sem sviku fleiri en mig
í hjarta mínu liggja göng grafin út af leiða
fyrir göngumóðar hugsanir sem í nóttinni veiða
minningar sem synda um í sjónum dökka rauða
og svefnvana ég ráfa um húsið stóra auða

á akri vitundar minnar sáðmaðurinn sefur rótt
ég hef séð hann koma og fara nótt eftir nótt
og nætursvefninn farinn er með friðinn mjúka, hvíta
og ég finn í brjósti vökuna hjartað sundur slíta
svo ég ligg bara hérna svefnvana og syng í hljóði lag
og syndi gegnum næturmyrkrið inn í nýjan dag


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...