lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bubbi morthens & stríð og friður - þegar tíminn er liðinn

Loading...

[verse 1]
ég er búinn að vera hér í 18 ár
allt hefur sitt upphaf og endi
dýrmætt er lífið og litur augna afar blár
í dauðann manninn ég sendi
í dauðann manninn ég sendi

[verse 2]
fyrstu þrjú árin gerðist ekki neitt
ég lokaði mig dofinn bara inn
tíminn hann leið ekki og ég gat engu breytt
ég veit dauðinn hefur fullkomið minni
ég veit dauðinn hefur fullkomið minni

[chorus]
á morgun, á morgun opna þeir upp á gátt
opna stóru hliðin
ég er hræddur við lífið og í hvaða helvítis átt
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn

[verse 3]
steypa h~llur, lyfta lóðum jú
er það sem menn hér inni eru að gera
og vaka um nætur, hvísla ástin hvar ert þú
hark’af sér og bryðja stera
hark’af sér og bryðja stera
[verse 4]
aldrei sýn’ótta, ávallt vera „cool“
alveg sama á hverju sem gengur
þótt ginið sé opið og lyktin úr því fúl
skaltu muna, þú ert ekki lítill lengur
skaltu muna, þú ert ekki lítill drengur

[chorus]
á morgun, á morgun opna þeir upp á gátt
opna grænu hliðin
ég er hræddur og segðu mér í hvaða átt
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn
gengur maður þegar tíminn hér er liðinn

[instrumental]

[verse 5]
ég hef séð menn koma, kolaða inn
eftir keyrslu dauðans á femma
stöff sem dræpi ljón, ef það tæki það inn
ég hef séð dauðann í klefa lífið hremma
ég hef séð dauðann í klefa lífið hremma

[verse 6]
öll árin hef ég óttast, óttast það eitt
kom’útí heim sem ég þekki ekki
ég er fullur af sekt og ég get engu breytt
og hver dagur færir mér nýja hlekki
og hver dagur færir mér nýja hlekki
[chorus]
og í dag, í dag opna þeir uppá gátt
opna litla~hrauns hliðin
hvert á ég að fara og í hvaða helvítis átt
nú þegar tíminn hér inni er liðinn
nú þegar tíminn minn hér inni er liðinn
nú þegar tíminn minn hér inni er liðinn


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...