lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu bjarni arason - aðeins lengur

Loading...

ég veit þú ert á förum og þú veist mér finnst það leitt
en skjótt í lofti skipast geta veður
bara’eitt augnablik í viðbót sem öllu gæti breytt
þess eins ég bið þig áður en þú kveður

ég vil heyra aftur orðin sem sögðum áður fyrr
kyssa tár af þínum hvarmi fyrr en gengur þú á dyr

vertu aðeins lengur~ tölum aðeins lengur
og leitum uppi ástina sem við höfum sáð
já vertu aðeins lengur – elsk~mst aðeins meira
við finnum kannski aftur það sem engin orð fá tjáð

ég vil höndum fara’um hár þitt og hverfa’í augu þín
og endurvekja brosið undurbjarta

ég vil endurheimta ást þá sem áður fyrr ég naut
og þá unaðslegu sælu er okkur féll í skaut

já vertu aðeins lengur – tölum aðeins lengur
og leitum uppi ástina sem við höfum sáð
já vertu aðeins lengur ~ elsk~mst aðeins meira
við finnum kannski aftur það
sem þýðir allt en engin orð fá tjáð

að finna líkama þinn
að hvísla orð kinn við kinn
í síðasta sinn
ég bið þig aðeins lengur – tölum aðeins lengur
og leitum uppi ástina sem við höfum sáð
já vertu aðeins lengur – elsk~mst aðeins meira
við finnum kannski aftur það
sem þýðir allt engin orð fá tjáð


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...