lirik.web.id
a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 #

lirik lagu biggi maus – ekki vera að eyða mínum tíma

Loading...

[verse 1]
ég vona að
þú getir fundið sátt við það
að fjallið hreyfist ei
eftir þinni skoðun
ég vil þér vel
en haggast ekki, því ég tel
að sannleikanum fylgi sjaldnast boðun
þú gætir virt mín mörk
en kýst frekar að reyna á mín takmörk
gerir grín að viðbrögðum og trú
segir að ég misskilji þig nú

[viðlag]
ég hleypi þér hér inn
þú reynir að selja mér guðdóm þinn
nei, ekki vera að eyða mínum tíma
í hjartað fórstu inn
en nú virkarðu andsetinn
nei, ekki vera að eyða mínum tíma

[verse 2]
ég á mitt speis
mér finnst þú vera ókurteis
reynir öllu að hagræða
eins og allt sé þín andstæða
þú spilar inn
á kærleika og samhug minn
að ég rétti alltaf hjálparhönd
sem þú slítur af við liðbönd
[viðlag]
ég hleypi þér hér inn
þú reynir að selja mér guðdóm þinn
nei, ekki vera að eyða mínum tíma
í hjartað fórstu inn
en nú virkarðu andsetinn
nei, ekki vera að eyða mínum tíma


Lirik lagu lainnya:

LIRIK YANG LAGI HITS MINGGU INI

Loading...